Leyndardómar Valþjófsstaðahurðarinnar. Skemmtilegt þrautahefti um Valþjófsstaðarhurðina og leyndardómana sem eru í kringum myndirnar á hurðinni. Valþjófsstaðahurðin er einn af merkilegustu gripum okkar og er varðveitt og til sýnis í Þjóðminjasafni Íslands. Hurðin var í kirkjunni á Valþjófsstað í Fljótsdal í yfir 600 ár og hægt er að sjá eftirlíkingu af henni þar.

En hvað vitið þið um Leyndardóma Valþjófsstaðahurðarinnar? Þessi bók inniheldur skemmtilegar þrautir og þær fjölmörgu sögur sem tengjast hurðinni, t.d. myndasögu um riddarann, drekann og ljónið í efri hring sögu hurðarinnar. Við ferðumst aftur í tímann, innanlands og utan landsteinanna og skoðum hurðina með tilliti til safnastarfs og rannsókna og komumst að ýmsu merkilegu eins og því hvernig hún var á litinn. Í þessu hefti er varpað ljósi á þessar sögur á forvitnilegan máta, og þannig að allir hafi gaman af. Skemmtilegt þrautahefti sem inniheldur orðasúpu, þrautir, sögur, ráðgátur og rúnir.

Author
Blær Guðmundsdóttir
Year of Publication
2025