when
27. júní 2025
31. desember 2025
Where
2. hæð

Fengur– Ný aðföng er heiti á nýrri sýningu í Þjóðminjasafni Íslands sem endurspeglar á margan hátt fjölbreytta starfsemi safnsins. Ný aðföng er samheiti yfir allt það sem berst til Þjóðminjasafnsins og bætist við safnkost þess ár hvert. Sumt fær safnið að gjöf, öðru ber að skila til safnsins samkvæmt lögum og enn öðru er safnað á skipulegan hátt.

Við móttöku í safninu verða þessi nýju aðföng þjóðareign. Þegar tekið er á móti ljósmyndum, gripum, gögnum eða húsum þarf að vanda til verka og að mörgu er að hyggja. Því starfi sinna ólíkir sérfræðingar innan safnsins og á sýningunni er skyggnst á bak við tjöldin.

Safnkostur Þjóðminjasafnsins skiptist í fjórar safnheildir: munasafn, ljósmyndasafn, þjóðháttasafn og húsasafn. Í munasafni má finna margs konar hluti úr eigu einstaklinga og stofnana en því tilheyra líka jarðfundir, gripir sem fundist hafa við fornleifarannsóknir sem og forngripir fundnir fyrir tilviljun á víðavangi. Í ljósmyndasafni er hvers kyns myndefni og í þjóðháttasafni eru varðveittar lýsingar fólks á gömlum lifnaðarháttumog upplifun þess á stökum atburðum og samfélagsbreytingum. Í húsasafni er varðveitt íslensk byggingararfleifð, á um 40 stöðum víðsvegar um landið.

Á sýningunni má sjá úrval nýrra aðfanga í Þjóðminjasafni Íslands frá árunum 2020-2024. Til dæmis má þar sjá höfuðkúpbrot sem fundust í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu árið 2023 og vöktu töluverða fjölmiðlaumfjöllun. Þá er þar að finna ljósmynd af fyrstu þyrlunni sem flutt var til Íslands, einstaka 17. aldar flauelshúfu frá Þingeyrum, vandaðan taflmann úr ýsubeini frá 12.-13. öld og fjölmarga aðra áhugaverða gripi.

Safnkosturinn er skráður í veflæga gagnagrunninn Sarp: www.sarpur.is

Sýningin Aðföng - Ný aðföng er á annarri hæð Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu. Sýningin mun standa til ársloka 2025 og er opin alla daga á opnunartíma safnsins (kl. 10-17).

Curator:
Manuscript:
Translation:
Proofreading:
Installation:
Printing photographs:
Picture framing:
Exhibition design:
Printing text:
Credits:
Samstarfsaðilar:

Frá sýningunni

No items found.
Safnbúð

Ljósmyndir úr safneign og sérhannaðar fallegar vörur sem tengjast sýningarhaldi

Stay tuned

Subscribe to our newsletter

Subscribe to the Museum's newsletter and receive invitations to exhibition openings, news about events and lectures, and special offers in the Museum Shop.

Thanks! Check your inbox and click the link to confirm your subscription.
Something went wrong. Please try again.