Samstarf Strætó og Þjóðminjasafns Íslands
Þjóðminjasafn Íslands og Strætó hafa tekið höndum saman til að fagna þeim merka áfanga að íslensk sundmenning er komin á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns. Sundmenningin, sem lifandi hefð, er þar með viðurkennd á alþjóðavettvangi sem einkennandi þáttur í menningu íslensks samfélags.

Sundvagninn er því kominn til sögunnar og  mun aka leið 1 næstu vikurnar. Vagninn skartar myndum frá ljósmyndasafni Þjóðminjasafnsins og við vonum að þær veki gleði vegfarenda og farþega. Samstarfið við Strætó er mikilvægur þáttur í hlutverki safnsins að miðla íslenskri menningu til samfélagsins og kynda undir það stolt sem við megum bera til sundmenningarinnar okkar.

Vagninn verður til sýnis við Þjóðminjasafnið við upphaf Safnanætur á sundfögnuði í safninu í dag, 6. febrúar, kl. 17. Þar munu Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður, Logi Einarsson menningarráðherra og Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands og velunnari íslenskrar sundmenningar, flytja ávörp. Boðið verður upp á örsýningar sem tengjast sundmenningu þjóðarinnar og sundlaugabíó í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands. Einnig koma fram Linus Orri Gunnarsson Cederborg, fulltrúi gamalla hefða í íslenskum kveðskap og Erpur Eyvindarson, fulltrúi nýrra blæbrigða, en þeir munu hræra í tímalausa rímnasúpu gestum til skemmtunar.

Myndir

No items found.
Stay tuned

Subscribe to our newsletter

Subscribe to the Museum's newsletter and receive invitations to exhibition openings, news about events and lectures, and special offers in the Museum Shop.

Thanks! Check your inbox and click the link to confirm your subscription.
Something went wrong. Please try again.