Sundlaugasumar 2026

Í tilefni þess að sundlaugamenning var í desember staðfest á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf heims, auglýsti Þjóðminjasafn Íslands, í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, eftir umsóknum um styrki til menningarviðburða í sundlaugum landsins.
Verkefnin endurspegla fjölbreytileika og sköpunarkraft en meðal þess sem boðið verður upp á eru tónlistarflutningur, gjörningar, fræðsluviðburðir og samfélagsverkefni. Þar má nefna sundsalsa, sundkeppni í sögulegum vaðmálsklæðnaði, kórasöng, sundsirkus og fljótandi kokteilkvöld með ætum blómum.
Markmið styrkjanna er að efla menningarlíf í sundlaugum landsins, sem um árabil hafa gegnt mikilvægu hlutverki í daglegu lífi landsmanna, og skapa um leið ný tækifæri til menningarupplifunar í nærumhverfi fólks. Með verkefnunum er einnig leitast við að vekja athygli á þeirri einstöku sundlaugamenningu sem mótað hefur íslenskt samfélag um áratugaskeið.
Frumkvæðið miðar að því að færa list og menningu nær fólki og sameina á skapandi hátt sundlaugamenningu og önnur menningarform. Fram undan er því spennandi sumar þar sem sundlaugar landsins verða ekki aðeins vettvangur slökunar og hreyfingar, heldur einnig lifandi miðstöðvar sköpunar, samveru og menningarupplifunar fyrir alla. Sjáumst í sundi!
Dagskrá
Sundlaugamenning – 30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar
Sundlaugar Ísafjarðarbæjar
29. maí – 1. júní
Sundballetttímar á Vestfjörðum með Sundballettinum Eilífðinni
Sundlaugin á Suðureyri
4. júní
Sundballetttímar á Vestfjörðum með Sundballettinum Eilífðinni
Sundlaugin á Þingeyri
5. júní
Að synda eða sökkva
Sundlaug Borgarnes
25. júní, kl. 17:00-19:00
Konukroppar - sviðsverk í sundlaugum
Auglýst síðar
25. júní, kl. 12:00
Syngjum saman í sundi
Sundlaugar Akraness
Júní - auglýst síðar
SundStrengir
Sundhöll Reykjavíkur
16. ágúst, kl. 18:30
Jazzhátíð Reykjavíkur í Vesturbæjarlaug
Vesturbæjarlaug
30. ágúst, kl. 12:00-13:00
Sumarsalsasund í Árbæjarlaug
Árbæjarlaug
Ágúst - auglýst síðar
Skáldasuð - ljóðahátíð
Sundlaugar í Múlaþingi
Sumar - auglýst síðar
Sundlögin okkar
Sundlaugin Hrafnagili
Að áliðnum slætti
Söngsund
Sundlaug Dalvíkur
September - auglýst síðar
Fjölmenningarbíó í Sundlaug Hafnar
Sundlaug Hafnar
September - auglýst síðar
Hvalasöngur í kafi og sundmenning Vestmannaeyja
Sundlaug Vestamannaeyja
30. október
Sundlaugamenning í Grýtubakkahreppi - tal og tónar
Sundlaug Grenivíkur
Haust - auglýst síðar
Sundbíó Sundskála Svarfdæla
Sundskáli Svarfdæla
Haust - auglýst síðar
Fljótum saman
Sundlaugin á Þórshöfn
Haust - auglýst síðar
Flæði
Vatnaveröld
7. nóvember, kl. 16:00-17:00
Jónasarlög í Jónasarlaug
Jónasarlaug á Þelamörk
16. nóvember
Mökkur í rökkri
Auglýst síðar
Desember - auglýst síðar
Sund á Selfossi
Sundhöll Selfoss
Auglýst síðar
Sirkus Sund! - nýsirkus í Laugardalslaug
Laugardagslaug
Auglýst síðar
Sungið í lauginni
Sundlaugar Akureyrar
Auglýst síðar
KvöldSundStund á Snæfellsnesi
Sundlaugar á Snæfellsnesi
Auglýst síðar











