When
May 21, 2025
kl. 13
where
Fyrirlestrarsalur

Íslandsdeild ICOM, FÍSOS og safnaráð boða til málþings í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands í tengslum við Alþjóðlega safnadaginn 2025.

Í heimi sem er á sífelldri hreyfingu og átök verða sífellt meira áberandi býður þema safnadagsins í ár, Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum, okkur að huga að hlutverki og umhverfi safna í þessu tilliti.

Hvaða merkingu hafa söfn þegar samfélagið e rklofið og pólarísering eykst? Hvaða ábyrgð bera menningarstofnanir gagnvart almenningi sem tengslamyndandi þekkingarmiðstöðvar og samfélagskjarnar? Og hvernig mótast söfn af umhverfi sínu, utanaðkomandi þrýstingi og kröfum um afstöðuleysi?

Á málþinginu verður fjallað um söfn og hið samfélagslega rof, framtíðarhorfur og möguleika þeirra til að hafa áhrif.

Dagskrá málþingsins:
13:00 – Hlynur Hallsson, fundarstjóri – Setning málþings
13:05-13:20 – Hólmar Hólm, formaður Íslandsdeildar ICOM – Ávarp: Að takast ávið rofið
13:20-13:45 – Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði HÍ – Safnið sem átakavettvangur
13:45-14:10 – Dr. Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði HÍ – Eru íslensk söfn hrædd við víkinga? Víkingar sem menningararfur eða söluvarningur ferðaþjónustunnar

14:10-14:30 – Kaffihlé

14:30-14:55 – David Anderson, prófessor,Cardiff University - Frá ráðstefnu AAM
14:55-15:20 – Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna '78
15:20-16:15 – Pallborðsumræður

---

Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn 18. maí ár hvert en ICOM, Alþjóðaráð safna, hefur staðið fyrir deginum síðan árið 1977. Framkvæmd dagsins er samstarfsverkefni Íslandsdeildar ICOM og FÍSOS með öflugum stuðningi frá safnaráði og söfnunum í landinu.

Watch the lecture here

Explore our YouTube channel

Speakers and Topics

Stay tuned

Subscribe to our newsletter

Subscribe to the Museum's newsletter and receive invitations to exhibition openings, news about events and lectures, and special offers in the Museum Shop.

Thanks! Check your inbox and click the link to confirm your subscription.
Something went wrong. Please try again.