Barnaviðburður
Katta- og hundasmiðja með Skrímslasmiðjunni (Seinni dagur)

When
November 2, 2025
Kl. 12-15
where
Barna- og fjölskyldurými
Ný sýningÞjóðminjasafns Íslands, “Eins og hundur og köttur”, opnar á 3. hæð safnsins laugardaginn 1. nóvember kl. 14. Í tilefni þess verður katta- og hundasmiðja á vegum Skrímslasmiðjunnar í barna- og fjölskyldurýminu á fyrstu hæð um opnunarhelgina milli kl. 12 og 15, báða dagana.
Gestir setja saman sitt eigið hunda- eða kattarskrímsli með því að velja búk, útlimi,eyru, augu og hár. Skrímslið er svo saumað saman á staðnum. Hunda- og kattarskrímslin eru búin til úr íslenskri ull.
Hvert skrímsli kostar 7.500 kr. og þátttakendur smiðjunnar og fjölskyldur þeirra fá í kjölfarið aðgang að safninu sér að kostnaðarlausu.











