Ráðstefnu- og tónleikasalur Safnahúsinu við Hverfisgötu
Ráðstefnu- og tónleikasalur
Safnahúsið við Hverfisgötu
Í Safnahúsinu eru góð fundar- og vinnuaðstaða. Um er að ræða tvö fundarherbergi, Norður- og Suðurstofu sem rúma smærri hópa og gamla lestrarsalinn. Gamli lestrarsalurinn tekur allt að 90 manns í sæti og er tilvalinn fyrir stærri fundi, ráðstefnur eða tónleika. Hægt er að setja upp skjávarpa og einfalt hljóðkerfi.
Gjaldskrá (virkir dagar til kl. 17):
Tími | Fjöldi | Verð |
---|---|---|
4 klst. | 30-50 | 52.000 |
4.klst. | 50-100 | 67.000 |
8 klst. | 30-50 | 78.000 |
8 klst. | 50-100 | 95.000 |
Uppröðun fyrir tónleika. Rúmar 85 tónleikagesti. Stólum raðað í boga út frá miðju salarins.
Uppröðun fyrir fyrirlestur. Rúmar 91 fyrirlestragest.