Starfsfólk

Í Þjóðminjasafninu starfar fjölbreyttur hópur sem leggur sig fram um að sinna meginhlutverki safnsins: Að varðveita, rannsaka og miðla menningararfi Íslendinga. Innan safnsins eru fjögur svið og starfsstöðvar eru þrjár. Skrifstofur eru opnar frá kl. 8-16 á virkum dögum.
Þjóðminjavörður
Þjóðminjavörður er Harpa Þórsdóttir. Skrifstofa Þjóðminjavarðar er að Suðurgötu 41.
Munasvið
Á munasviði er unnið að faglegu safnastarfi og þjóðminjavörslu menningar- og þjóðminja; þ.e. húsa, mynda, muna og þjóðhátta með söfnun, varðveislu, rannsóknum, skráningu og miðlun. Framkvæmdastjóri munasviðs er Ágústa Kristófersdóttir.
Fjármálasvið
Fjármálasvið annast fjármál stofnunarinnar og hefur umsjón með samningagerð og skjalastjórn. Undir sviðið heyrir einnig allur almennur rekstur stofnunarinnar, nánar tiltekið rekstur tækni- og upplýsingakerfa og rekstur húsnæðis og bifreiða.
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs er Guðmundur Lúðvík Gunnarsson.
Mannauðs- og miðlunarsvið
Mannauðs- og miðlunarsvið vinnur að verkefnum tengdum stefnumótun, þróun, mannauðsmálum og miðlun á menningartengdu efni, svo sem með sýningum, fræðslu og útgáfu. Sérfræðingar sviðsins sjá meðal annars um fræðslu fyrir skólahópa, skipulagningu viðburða, umsjón með vef- og samfélagsmiðlum og markaðs- og kynningarmál. Framkvæmdastjóri mannauðs- og miðlunarsviðs er Ingibjörg Eðvaldsdóttir
Þjónustusvið
Þjónustusvið sér um þjónustu við gesti safnsins, rekstur kaffihúss og safnbúðar ásamt almennri þjónustu og leiðsögnum um safnið fyrir ferðafólk og almenna gesti. Sviðið tekur þátt í skipulagningu viðburða innan safnsins.
Framkvæmdastjóri þjónustusviðs er Kristín Ýr Hrafnkelsdóttir.
Þjóðminjavörður

Fjármálasvið

Guðmundur Lúðvík Gunnarsson


Pétur Steinn Ásgeirsson

.jpg)
Vilhjálmur H. Ólafsson
Mannauðs- og miðlunarsvið
.webp)
Ingibjörg Eðvaldsdóttir





Munasvið



.webp)



Kristín Halla Baldvinsdóttir






Þjónustusvið

Berglind Ýr Sveinbjörnsdóttir










Kristín Ýr Hrafnkelsdóttir - í leyfi




