When
June 12, 2025
Kl. 9
where
Þjóðminjasafn Íslands og Árnastofnun

Þjóðminjasafn Íslands og Árnastofnun bjóða sameiginlega upp á námskeiðið Drekar og kynjaverur - skoðum og skissum í Háskóla unga fólksins, 12. júní frá kl. 9-13.30. Á námskeiðinu fá nemendur m.a. að skissa, skrifa með fjaðurstaf á skinn, skoða spennandi sýningar og útbúa eigin sýningu sem síðar verður sett upp á Þjóðminjasafni Íslands.

Við skoðum og skissum gripi af grunnsýningu Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til. Athyglin beinist að drekum og kynjaverum sem m.a. má sjá í útskornum gripum á sýningunni. Nemendur fá einnig að skoða gripi sem tengjast handritagerð áður en haldið er í Eddu þar sem sýningin Heimur í orðum verður skoðuð. Í handritunum leynast einnig drekar og ýmsar furðuverur sem nemendur fá tækifæri til að nýta í eigin listsköpun. Að lokum setjumst við niður í skrifarastofu þar sem nemendur bregða sér í hlutverk skrifara á miðöldum. Í skrifarastofunni fullvinna nemendur verk sín og fá til þess bókfell (kálfskinn), fjaðurstaf og náttúrublek.
Verk nemenda verða til sýnis í barna- og fjölskyldurými Þjóðminjasafnsins í kjölfarið ásamt ljósmyndum og texta um ferlið að baki gerð verkanna.

Nánari upplýsingar um námskeiðið: https://ung.hi.is/is/drekar-og-kynjaverur-skodum-og-skissum
Skráning á námskeið: https://ung.hi.is/is/namskeid

Watch the lecture here

Explore our YouTube channel

Speakers and Topics

Stay tuned

Subscribe to our newsletter

Subscribe to the Museum's newsletter and receive invitations to exhibition openings, news about events and lectures, and special offers in the Museum Shop.

Thanks! Check your inbox and click the link to confirm your subscription.
Something went wrong. Please try again.