When
May 5, 2025
kl. 13
where
Fyrirlestrarsalur

Á Alþjóðadegi ljósmæðra mánudaginn 5. maí nk. býður Þjóðminjasafn Íslands í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, Félag þjóðfræðinga á Íslandi og Námsbraut í þjóðfræði við Háskóla Íslands til málþings um meðgöngur, fæðingar og þjóðfræði því tengt.

Málþingið er haldið í tilefni þess að þjóðháttasafn Þjóðminjasafnsins safnar nú upplýsingum hjá almenningi um meðgöngu, fæðingar og fyrstu mánuði barnsins. Sambærileg spurningaskrá var send út frá safninu árið 1963, en ljóst er að hefðir og verklag tengt meðgöngu og barneignum hafa breyst á undanförnum 60 árum.

Á málþinginu munu þjóðfræðingar og ljósmæður leiða saman hesta sína í fjölbreyttum erindum um efni þessu tengt, og þannig hjálpa nýrri spurningaskrá Þjóðháttasafnsins að líta dagsins ljós.

Málþingið hefst kl. 13:00 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands og er öllum opið.

Watch the lecture here

Explore our YouTube channel

Speakers and Topics

13:00   Setning málþings 

13:10    62 ára meðganga: Ný spurningaskrá lítur dagsins ljós   

Helga Vollertsen sérfræðingur Þjóðháttasafns

13:30    Ljósmæður hjá álfum, mikilvægi sagnaarfsins  

Eva Þórdís Ebenezersdóttir þjóðfræðingur   

13:50 „Vei þér móðir“: Töfrapils sem getnaðarvarnir í íslenskum þjóðsögum   

Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur   

14:20    Biðjum þá dísir að duga:  Fæðingarhjálp heiðinna vætta   

Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur og þjóðfræðingur

14:50   Ljósmæður og skemmri skírn 

Berglind Ragnarsdóttir þjóðfræðingur  

15:20   Fæðingarsögur: Þekkingarbrunnur ljósmóðurfræða og listar  

Ólöf Ásta Ólafsdóttir, prófessor emeríta við hjúkrunar-ogljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands  

15:50   Spurningaskrá kemur íheiminn! Formlegopnun nýrrar spurningaskrár.  

16:00   Kaffi og kleinur   

 

Fundarstjórn verður í höndum ljósmóður, sem hjálpar þannig nýrrispurningaskrá í heiminn.

Aðgangur á málþingið er ókeypis

Stay tuned

Subscribe to our newsletter

Subscribe to the Museum's newsletter and receive invitations to exhibition openings, news about events and lectures, and special offers in the Museum Shop.

Thanks! Check your inbox and click the link to confirm your subscription.
Something went wrong. Please try again.