Algengar spurningar
Ef þú finnur ekki svar við spurningu þinni eða átt önnur erindi, ekki hika við að hafa samband.
Netfang: thjodminjasafn@thjodminjasafn.is / Sími: 530 2200
Leiðsagnir
Vinsamlega sendu pöntun á bokun@thjodminjasafn.is. Leiðsögn kostar 30.000 kr. Þátttakendur borga einnig aðgöngumiða.
Hópar
Ef hópurinn er fjölmennari en 25 manns, vinsamlega láttu vita um komu hópsins svo við getum tekið vel á móti honum, bokun@tjodminjasafn.is.
Skólaheimsóknir
Upplýsingar og bókanir má nálgast hér.
Kostar inn á fyrirlestra og viðburði?
Já, nema annað sé tekið fram. Almennur aðgöngumiði (3.000 kr.) gildir á alla viðburði og sýningar í ár frá kaupum.
Bílastæði
Við safnið eru gjaldfrjáls bílastæði. Á Háskólasvæðinu er fjöldi bílastæða, fyrir þau stæði þarf að greiða.
Starfsfólk
Hér finnur þú starfsfólk safnsins og netföng og símanúmer.
Viltu afhenda safninu jósmyndir
Ef þú vilt afhenda safninu myndir eða kaupa myndir eða birtingarrétt er hægt að senda fyrirspurn eða beiðni á ljosmyndasafn@thjodminjasafn.is. Nánari upplýsingar er að finna hér.
Viltu afhenda safninu muni?
Ef þú vilt afhenda Þjóðminjasafninu muni, vinsamlega sendu ljósmyndir af þeim og upplýsingar um aldur, eigendur, uppruna og sögu gripanna á munasafn@thjodminjasafn.is. Allar nánari upplýsingar er að finna hér.
Aðgangur að gripum vegna rannsókna og láns
Fjölmiðlapassi
Fjölmiðlafólk getur sótt um aðgang að safninu vegna umfjöllunar hér.
Reikningar
Reikningar þurfa að vera rafrænir. Þau sem ekki eru með rafræna reikningsþjónustu geta sent reikning í gegnum Fjársýslu ríkisins.