Hvenær
Opið alla daga frá kl. 8 - 18
Hvar
Hrunamannahreppi

Tungufellskirkjaí Hrunamannahreppi var reist árið 1856, en fram að því munu flestar eða allar kirkjur á staðnum hafa verið torfkirkjur. Kirkjan er af elstu gerð íslenskra timburkirkna og er hvelfingin í kórnum undir áhrifum frá Dómkirkjunni í Reykjavík.

Hvelfing kirkjunnar er með elstu slíkum hvelfingum í timburkirkjum á Íslandi. Kirkjan var fyrst máluð að innan árið 1915. Forsmiður Tungufellskirkju var Sigfús Guðmundsson snikkari frá Ytri-Tjörnum í Eyjafirði, afkastamikill kirkjusmiður á Suðurlandi, en hann smíðaði m.a. kirkjuna í Hruna. Altari, umbúnaður altaristöflu og prédikunarstóll er skorið og málað af Ófeigi Jónssyni frá Heiðabæ.

‍

Kirkjan var gefin Þjóðminasafni Íslands árið 1987 og hefur síðan verið hluti af húsasafni þess.

‍

Elsta ritaða heimild um Tungufellskirkju er í kirknaskrá frá því um 1200 en á miðöldum var kirkjan helguð Andrési postula.

‍

Gestir eru velkomnir á eigin ábyrgð. Vinsamlegast gangið vel um.

‍

PDF Icon

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.