Fræðslupakkar-Inngangur

Fræðslupakkar

Safnfræðsla Þjóðminjasafns Íslands býður kennurum í grunnskólum veflæga fræðslupakka um ólík þemu gamla bændasamfélagsins. Einn pakkinn fjallar reyndar um safnið sjálft. Fræðslupakkarnir innihalda myndbönd safnkennara ásamt ítarefni svo sem heimildamyndir, vefsýningar, vefsíður og rit. Öllu er pakkað inn í kennsluáætlun með hugmyndum að verkefnum sem vinna má með nemendum út frá efninu.

Fræðslupakkarnir henta einkum yngsta stigi og miðstigi en ýmislegt gagnast líka í kennslu með eldri nemendum. Þeir geta staðið einir og sér, án komu í safnið, en þjóna líka sem undirbúningur eða eftirfylgni í tengslum við safnheimsókn.

Fyrstu fræðslupakkarnir eru kominn á vefinn. Þeir fjalla um vinnslu ullarinnar, allt frá því að ærin er rúin og þar til komin er fullbúin afurð, um líf og leiki barna áður fyrr og um sjálft Þjóðminjasafnið og það fjölbreytta starf sem þar er unnið.

Athugið að efnið er í vinnslu.


Hvað er Þjóðminjasafn Íslands?

Er heimsókn í Þjóðminjasafnið fram undan? Þjóðminjasafnið á sér margar hliðar sem ekki eru augljósar hinum almenna gesti. Hvað gerist á bak við tjöldin? Hvað gerir fólkið sem vinnur í safninu? Hvernig eiga sýningargestir að haga sér? Í gegnum myndböndin má komast á snoðir um eitt og annað um þetta höfuðsafn menningarminja.

Myndböndin eru ætluð nemendum á öllum aldri. Þau nýtast bæði þeim sem áforma að heimsækja safnið en einnig þeim sem einfaldlega vilja kynnast safninu betur.

Lesa meira