Framhaldsskólar

Almenn leiðsögn. Grunnsýningin; Þjóð verður til

  • Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Almenn leiðsögn um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til, er ávallt í boði fyrir alla aldurshópa. 

Safnfræðsla fyrir framhaldsskólahópa felur í sér leiðsagnir um grunnsýningu Þjóðminjasafns Íslands Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár út frá ólíkum sjónarhornum sem henta mismunandi fögum eða áföngum.

Einnig geta kennarar á framhaldsskólastigi komið með nemendur á eigin vegum á sýningar Þjóðminjasafns Íslands á Suðurgötu 41. Kennarar mega einnig senda nemendur á sýningar á eigin vegum til þess að vinna fyrir fram skilgreind verkefni sem þeir standa skil á gagnvart kennara.

Hægt er að bóka heimsókn framhaldsskóla á bókunarsíðu Þjóðminjasafns Íslands. Nánari upplýsingar: kennsla@thjodminjasafn.is eða hafið samband í síma 5302255 eða 5302254.