Framhaldsskólar

Leiðin til samtímans. Tímabilið 1600-2000

  • Grunnsýning - Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Seinni hluti grunnsýningar safnsins er kannaður, þar sem fjallað er um sögu Íslandsbyggðar frá siðaskiptum til nútímans. 

Safnfræðsla fyrir framhaldsskólahópa felur í sér leiðsagnir um grunnsýningar Þjóðminjasafns Íslands Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár út frá ólíkum sjónarhornum sem henta mismunandi fögum eða áföngum.

Einnig geta kennarar á framhaldsskólastigi komið með nemendur á eigin vegum á sýningar Þjóðminjasafnsins á Suðurgötu. Kennarar mega einnig senda nemendur á sýningar á eigin vegum til þess að vinna fyrir fram skilgreind verkefni sem þeir standa skil á gagnvart kennara.

Hægt er að bóka heimsókn framhaldsskóla á bókunarsíðu Þjóðminjasafns Íslands. Nánari upplýsingar: kennsla@thjodminjasafn.is eða hafið samband í síma 5302255 eða 5302254.