Þjóð í mótun. Tímabilið 800-1600
Farið er yfir fyrri helming grunnsýningar safnsins, þar sem fjallað er um sögu Íslandsbyggðar frá landnámi og fram yfir siðaskipti.
Smellið hér til að bóka heimsókn
Safnfræðsla fyrir framhaldsskólahópa felur í sér leiðsagnir um grunnsýningu Þjóðminjasafns Íslands: Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár út frá ólíkum sjónarhornum sem henta mismunandi fögum eða áföngum.
Einnig geta kennarar á framhaldsskólastigi komið með nemendur á eigin vegum á sýningar Þjóðminjasafns Íslands á Suðurgötu 41. Kennarar mega einnig senda nemendur á sýningar á eigin vegum til þess að vinna fyrir fram skilgreind verkefni sem þeir standa skil á gagnvart kennara.
Smellið hér til að bóka heimsókn
Nánari upplýsingar: kennsla@thjodminjasafn.is eða hafið samband í síma 5302255 eða 5302254.