Framhaldsskólar
  • Myndasalur í 20 ár

Myndasalur í 20 ár | Úr safneign

Í Myndasal stendur nú yfir sýning á ljósmyndum eftir samtímaljósmyndara sem sýnt hafa verk sín í Myndasal frá því hann var opnaður árið 2004.

Smellið hér til að bóka heimsókn

Sýningarrýmið Myndasalur var opnað árið 2004. Salurinn hefur verið helgaður samtímaljósmyndun og Þjóðminjasafnið lagt áherslu á að sýna verk sem endurspegla listræna sköpunargáfu ljósmyndara á Íslandi. Fjölmargar samsýningar og einkasýningar á verkum núlifandi ljósmyndara hafa verið settar upp í Myndasal og hefur safnið fengið tvær til fjórar ljósmyndir af hverri sýningu til eignar. Þessi hluti safneignarinnar myndar eins konar yfirliti yfir íslenska samtímaljósmyndun. Á sýningunni Myndasalur í 20 ár getur að líta úrval þess efnis.

Eftirtaldir ljósmyndarar eiga verk á sýningunni:

Agnieszka Sosnowska
Alda Lóa Leifsdóttir
Anie Ling
Bragi Þór Jósefsson
Christopher Taylor
David Barrero
Einar Falur Ingólfsson
Guðmundur Ingólfsson
Haraldur Jónsson
Heiða Helgadóttir
Inga Lísa Middelton
Ívar Brynjólfsson
Jessica Auer
Katrín Elvarsdóttir
Kristín Bogadóttir
Marinó Thorlacius
Mary Ellen Mark
Pétur Thomsen
Rob Honstra
Rúnar Gunnarsson
Sigríður Marrow
Spessi
Stuart Richardson
Valdimar Thorlacius
Vassilis Triantis
Yrsa Roca Fannberg
Þórdís Erla Ágústsdóttir

Heimsóknin

Safnkennari tekur á móti hópunum og veitir kynningu á sýningunum. Áhugavert gæti verið fyrir nemendur að velta fyrir sér ýmsum hliðum efnisins, til dæmis:

- Hver er tilgangurinn með myndatökunni?*
- Hvaða gildi hafa ljósmyndirnar? Heimildagildi og/eða fagurfræðilegt gildi?
- Eru myndirnar lýsandi fyrir samfélagið á þeim tíma sem þær eru teknar?

Heimsóknir skólahópa eru ókeypis.

Smellið hér til að bóka heimsókn

Eða hafið samband á kennsla@thjodminjasafn.is eða í síma 530 2255.