Gullkista safnfræðslunnar

Rúnir

Rúnir eru stafir sem hægt er að skrifa og lesa. Hluti landnámsfólksins hefur líklega kunnað að rista rúnir.  Elstu rúnaristurnar sem fundist hafa á Íslandi eru frá 10. öld. 

Fúþark

Fúþark, yngra og eldra til útprentunar.

Rúnastafrófið kallast Fúþark, eftir fyrstu sex rúnunum. Eldra fúþarkið eru 24 rúnir. Yngra fúþarkið eru einungis 16 rúnir.

Bandrúnir

Bandrúnir eru tvær eða fleiri rúnir sem er blandað saman í eitt tákn. Þær eru stundum notaðar til að tákna fyrstu stafina í nafni  og þannig er hægt að merkja sér hlutiCapture_1631195672560

Hér er stutt myndband sem kennir gerð bandrúna og í framhaldi er kennd einföld stimplagerð til að búa til stimpil með bandrún.

Bluetooth lógóið er bandrún úr rúnum teknum úr yngra fúþarkinu. Það eru (Hagall) ᚼ og (Bjarkan) ᛒ sem eru upphafsstafir Haraldar blátannar sem var konungur í Danmörku og Noregi og dó ca. árið 985.

Notkun rúnarista

Rúnir hafa meðal annars verið notaðar til að merkja hluti og til að magna yfirnáttúruleg öfl.

Capture2

Rúnir voru ristar í hart efni eins og tré og stein.

Í rúnaristum er bil á milli orða stundum táknað með ⋮

Rúnaletrið var notað áfram samhliða latneska stafrófinu. Rúnirnar voru þó ekki skrifaðar á bækur, heldur áfram ristar í tré og stein, t.d. legsteina.

Capture1

 

Galdrastafir

Capture3

Galdrastafir eru skyldir bandrúnum og vernda eigandann.

Galdrar eða máttur voru, og eru enn, talin fylgja rúnum. Þær voru ekki bara letur, heldur líka notaðar til að magna ýmsa krafta.

Almennt um rúnir

Orðið rún getur merkt leyndardómur eða vísdómur.

Capture4

Stundum er áletrun á gömlum gripum sambland stafa úr gríska og latneska stafrófinu, rúnum og bandrúnum. Stundum hefur líka sumum stafanna verið snúið eða við þá bætt.

Í dag eru rúnir meðal annars notaðar til að tengja við fornan arf, til dæmis í vörumerkjum, en líka sem galdratákn, húðflúr og fyrir spálestur.