Háskólar

Háskólar

Þjóðminjasafnið býður upp á kynningu á starfsemi safnsins fyrir þau sem eru að hefja nám á háskólastigi.

Kynningin nýtist einkum nemendahópum úr inngangsnámskeiðum sagnfræði, þjóðfræði, safnafræði, mannfræði, fornleifafræði m. m. Auk kynningar á starfsemi safnsins er nemendum veitt innsýn í þá möguleika sem standa þeim opnir til að nýta þær heimildir sem safnið geymir um sögu, umhverfi og samfélag á Íslandi frá landnámi til okkar tíma.

Kynningin tekur um eina og hálfa klukkustund og felst í kynningu í fyrirlestrasal eða kennslustofu og stuttri leiðsögn um sýningar safnsins.

Hægt er að bóka heimsókn háskólahópa á bókunarsíðu Þjóðminjasafns Íslands eða senda beiðni um bókun á netfangið kennsla@thjodminjasafn.is eða hafið samband í síma 5302255 eða 5302254.