Leikskólar

Drekar og forynjur

  • Dagskrá ætluð 4-6 ára börnun

Dagskráin er ætluð 4 - 6 ára börnum. Leitast er við að gera safnheimsóknina að skemmtilegri og ævintýralegri upplifun og lögð áhersla á að heimsóknin sé uppgötvunarleiðangur fyrir börnin. Þau eru hvött til að spyrja spurninga og tjá sig um hvernig þau tengja við sýningargripi. Í heimsókninni er byggt á reynsluheimi barnanna með vísun í sögur og minni úr dægurmenningu samtímans. 

Að heimsókn lokinni hafa börnin kynnst hugtökunum safn og sýning og upplifað Þjóðminjasafnið sem áhugaverðan stað til að heimsækja. Þau hafa skoðað gripi sem tengjast ævintýralegum hugarheimi forfeðra og -mæðra okkar í gegnum gripi og þjóðsögur.Dr10

Leiðarljós um leikskólastarf skv. Aðalnámskrá leikskóla

Einkum er tekið mið af þessum leiðarljósum:

  • Leikskóli á að vera félags- og menningarlegur vettvangur þar sem þjóðararfur og gildi íslensks samfélags skipa veglegan sess.
  • Starfshættir leikskóla eiga að hvetja börn til að tjá sig og hlusta á frásagnir, sögur, ljóð og ævintýri.
  • Í leikskóla eiga börn að fá tækifæri til að fást við viðfangsefni sem taka mið af áhuga þeirra, styrkleikum og þroska þannig að trú þeirra á eigin getu aukist og hneigð þeirra til náms eflist.

  • Í leikskóla á að byggja á reynsluheimi barna og skapa þeim merkingarbæra reynslu.
  • Í leikskóla á að nýta þau tækifæri sem gefast í daglegum samskiptum til að efla íslenska málvitund þar sem börn læra ný orð og hugtök og þróa tungumálið.

Fyrirkomulag heimsóknar

Tekið er á móti hópnum í anddyr safnsins. Útifatnaður er hengdur upp í fatahengi í kjallara. Börnin mega fara úr skóm ef þau koma við opnun safnsins og þurrt er úti. Hópurinn sest á bekk í anddyri þar sem safnkennari býður börnin velkomin. Dagskrá heimsóknarinnar er kynnt og velt upp ýmsum spurningum eins og hvað Þjóðminjasafnið sé eiginlega.226330966_229650005727204_7500089585551688694_n

Safnkennarinn leiðir hópinn um grunnsýningu safnsins, Þjóð verður til, þar sem ýmsa forvitnilega gripi er að sjá. Sumum gripum á safninu fylgja ævintýralegar sögur sem börnunum eru sagðar. Drekum og öðrum forynjum á sýningunni er gefinn sérstakur gaumur.

Við einn sýningaskápinn fá börnin að handleika eftirgerð af gripnum í skápnum.

Í lok heimsóknar er hópnum boðið til Stofu þar sem við tekur frjáls leikur. Stofa er aðstaða fyrir dægradvöl, þar sem eru leikföng, bækur, búningar, litir og pappír.

Heimsóknin tekur um 45-60 mínútur. Dagskráin er ætluð 4 - 6 ára börnum. Æskilegt er að ekki séu fleiri en 15 börn í hverjum hópi til þess að þau njóti heimsóknarinnar sem best.

Bókun skólahópa í fræðslu í Þjóðminjasafni Íslands fer fram í gegnum bókunarsíðu safnsins.