Húsasafn
  • Húsið á Eyrabakka

Húsið og Assistentahúsið á Eyrarbakka

  • Frá 30. maí til 31. ágúst er opið alla daga frá kl. 11-18 og eftir samkomulagi..

 Eyrarbakki varð ein af höfnum einokunarverslunarinnar árið 1602 og varð verslunin þar mjög umsvifamikil á síðari hluta 19. aldar og fram á þá tuttugustu. Húsið var reist árið 1765 og var upphaflega heimili verslunarstjóra og annars starfsfólks Eyrarbakkaverslunarinnar. Assistentahúsið var byggt við Húsið árið 1881 en þar var aðsetur verslunarþjóna Lefolii-verslunarinnar. Byggðasafn Árnesinga hefur verið í húsunum frá 1995. 

Opið alla daga frá 30. maí til 31. ágúst kl. 11 - 18 og eftir samkomulagi.

Litlu austan við Eyrarbakkakirkju stendur svartbikað timburhús, sem nefnist einfaldlaga Húsið. Áfast því með tengibyggingu er málað timburhús, Assistentahúsið, reist rúmri öld síðar. Áður höfði kaupmenn dvalist aðeins stuttan tíma á hverju sumri á landinu, en upp úr miðri átjándu öld fékk verslunarfélagið leyfi til þess að reisa íbúðarhús við verslunarhafnirnar svo að kaupmennirnir gætu dvalið þar allt árið. Húsið var reist árið 1765 og var upphaflega heimili verslunarstjóra og annars starfsfólks Eyrarbakkaverslunarinnar. Flestir íbúar Hússins fram til ársins 1919 voru danskir. Húsið er svokallað bolhús, og var það flutt tilsniðið til landsins. Veggir eru gerðir úr þykkum, nótuðum trjástokkum sem klæddir eru að utan með súð. Skorsteinn og eldstæði voru hlaðin úr steini. Assistentahúsið var byggt við Húsið árið 1881 og er timburhús af bindingsverki. Áður stóð þar önnur bygging, er gegndi svipuðu hlutverki. Í Assistentahúsinu var aðsetur verslunarþjóna Lefolii-verslunarinnar. Húsin tvö hafa verið í vörslu Þjóðminjasafnsins frá 1992 og var þá ráðist í mjög umfangsmiklar viðgerðir á þeim. Byggðasafn Árnesinga hefur verið í húsunum frá 1995.