Húsasafn

Teigarhorn við Berufjörð

  • Húsið er ekki opið almenningi.

Gamla íbúðarhúsið á Teigarhorni var reist fyrir Niels Peder Weywadt (1814-1883 ) verslunarstjóra Örum og Wulff verslunarinnar við Djúpavog um 1880. Reisulegur kvistur með flatsúlum í nýklassískum stíl setur sterkan svip á húsið. Unnið er að framkvæmdum á húsinu og það er því lokað.

Steinhlaðinn kjallari er undir húsinu og portbyggð hæð ofan á jarðhæð, en geymsluloft í risi. Grunnflötur hússins er um 65 fermetrar að stærð.

Niels Peter Emil Weywadt (1814-1883) var forstöðumaður Ørum & Wulff´s verslunarinnar við Djúpavog. Hann átti fjölda barna og næstelst þeirra var Nicoline (1848-1921) sem lærði myndasmíði í Kaupmannahöfn fyrst kvenna á Íslandi. Hún kynnti sér jafnframt steinafræði, en á Teigarhorni er fjöldi sérstakra geislasteina. Nicoline stýrði búi að föður sínum látnum og reisti við húsið ljósmyndaskúr, þar sem hún starfaði að iðn sinni. Hún var einn snjallasti ljósmyndari landsins, og er plötusafn hennar og ýmis áhöld til ljósmyndunar varðveitt í Þjóðminjasafninu. Hjá Nicoline lærði ljósmyndun frænka hennar Hansína Regína Björnsdóttir (1884-1973). Búið var í húsinu til 1988.

Byggingarlýsingu Guðmundar L. Hafsteinssonar er að finna hér.