Húsasafn
  • Víðimýrarkirkja

Víðimýrarkirkja í Skagafirði

  • Frá 1. júní til 31. ágúst, er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-18.

Torfkirkjan á Víðimýri var reist árið 1834 af Jóni Samsonarsyni smið og alþingismanni frá Keldudal. Kirkjan er opin gestum 1. júní - 31. ágúst, 10-18 alla daga. Sjá frekari upplýsingar :  http://www.glaumbaer.is/is/safnid

Víðimýrarkirkja er opin 12-18 alla daga, nema mánudaga frá 1. júní til 31. ágúst.
1000 kr. einstaklingar
700 kr. hópar & námsmenn
0 kr. fyrir 17 ára og yngri

Víðimýrarkirkja

Líklega hefur kirkja fyrst verið reist á Víðimýri fljótlega eftir kristnitöku í landinu. Samkvæmt elsta máldaga frá um 1318 var kirkja á Víðimýri helguð Maríu guðsmóður og Pétri postula.Víðimýrarkirkja er ein af örfáum torfkirkjum sem varðveist hafa á landinu og er meðal gersema í Húsasafni Þjóðminjasafns Íslands.Innréttingar Víðimýrarkirkju bera vitni um rótgróna hefð í sætaskipan íslenskra kirkna eftir siðbreytingu. Karlmenn sátu sunnanvert, heldri menn í kór en konur norðanvert, þær heldri í stúku.
Ýmsir gamlir munir eru í kirkjunni, sumir úr eldri kirkjum á staðnum. Altaristaflan, með ártalinu 1616, er líklega dönsk að uppruna og sýnir miðmyndin síðustu kvöldmáltíðina. Á íslensku er textinn undir altarisbríkinni svohljóðandi: „Svo oft sem þér etið þetta brauð og drekkið af bikarnum, boðið þér dauða Drottins, þangað til hann kemur.“ (1. Kor. 11:26).
Prédikunarstóll kirkjunnar er líklega frá 17. öld og eru myndir á honum mjög illa farnar af tímans tönn. Þær sýna Krist í miðju og guðspjallamennina til beggja hliða.

Sáluhliðið er frá 1936 en klukkur kirkjunnar eru báðar frá árinu 1630. Margir af eldri gripum Víðimýrarkirkju eru nú varðveittir á Þjóðminjasafni Íslands.
Kirkjan hefur verið hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands frá 1936.

Í upphafi 20. aldar var tvísýnt um afdrif Víðimýrarkirkju en Matthías Þórðarson sem þá var þjóðminjavörður hafði forgöngu um varðveislu hennar og sá til þess að hún komst í umsjá Þjóðminjasafnsins.

Ef óskað er eftir að skoða kirkjuna utan auglýsts opnunartíma er rétt að hafa samband við Byggðasafn Skagfirðinga á byggdasafn@skagafjordur.is eða í síma 453 6173. 

Kynningarbæklingur um Víðimýrarkirkju (PDF, 374,8 KB)