Með sögu í farangrinum - Brúðarbúningurinn

Einhver ríkulegasti brúðarbúningur í sögu landsins verður nú sýndur í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands. Búningurinn, faldbúningur sem að mestu leyti er frá síðari hluta 18. aldar, var lengi vel talinn hafa glatast í skipsskaða suður af landinu. Heimildir um hann höfðu varðveist og árið 1866 skrifaði Sigurður Guðmundsson málari: „Þettað forst alt fyrir sunnann land 1809 með Enskum. Þessa hluti hefir landið gjörsam lega mist og nú er öll von úti að menn fái her á landi þesskyns hluti jafn góða eða ef til vill synishorn af þesskyns gripum.“
Síðar kom í ljós að búningurinn hafði ekki farist í skipsskaðanum, en örlög hans voru hins vegar óþekkt. Árið 1963 uppgötvaði Elsa E. Guðjónsson, textíl- og búningafræðingur, að búningurinn væri varðveittur í safni Viktoríu og Alberts í Lundúnum. Sex árum síðar var hann um hríð til sýnis í Þjóðminjasafninu og snýr nú þangað aftur.
Saga þessa búnings er einstök, margslungin og oft á tíðum lyginni líkust.
- Hvernig hafnaði slíkur búningur um borð í ensku skipi sem brann fyrir sunnan land árið 1809?
- Hvernig endaði hann á stóru safni í Englandi?
- Hvað hafði Jörundur hundadagakonungur með það að gera að búningurinn bjargaðist?
- Hvað er faldbúningur og hvað gerir þennan búning að brúðarbúningi?
- Hverjar áttu og báru svo ríkulegan búning?
- Hver var blómstranna móðir? Saumaði hún einhverja hluta búningsins?
- Er eitthvað áþekkt varðveitt hér á landi?
Svörin við þessum spurningum fást á sýningunni Með sögu í farangrinum - Brúðarbúningurinn í Þjóðminjasafni Íslands. Þar gefst einstakt tækifæri til að sjá búninginn og kynnast ævintýralegri sögu hans, allt frá 18. öld til dagsins í dag.
Listakonan Kristjana S Williams túlkar örlagaríka sögu brúðarbúningsins með myndrænni framsetningu innan um gripina í sýningarrýminu.
Sýningin verður opnuð 9. maí 2026 og mun standa í eitt ár.
Sýningarnefnd
Freyja HlíðvistÓmarsdóttir Sesseljudóttir
Karólína Stefánsdóttir
Harpa Þórsdóttir
Ágústa KristófersdóttirKristín Ýr Hrafnkelsdóttir
Sýningarstjórn
Freyja Hlíðvist Ómarsdóttir Sesseljudóttir
Karólína Stefánsdóttir
Myndverk
Kristjana S Williams Studio
Kristjana S. Williams
Souhyung Kim, yfirhönnuður
Sýningartextar
Ágústa Kristófersdóttir
Freyja HlíðkvistÓmarsdóttir Sesseljudóttir
Karólína Stefánsdóttir
Yfirlestur
Embla Ýr Bárudóttir
Ensk þýðing
Annie H. Yates
Sérfræðingar
Ólöf Bjarnadóttir,registrar
Sandra SifEinarsdóttir, forvörður
Þórir Ingvarsson, forvörður
Ívar Brynjólfsson, ljósmyndari
Guðrún Hildur Rósenkær, sérfræðingur
Markaðsstjóri
Ragnheiður Skúladóttir
Viðburðadagskrá
Helga Vollertsen
Arna Björg Bjarnadóttir
Grafísk hönnun
E&Co
Einar Geir Ingvarsson
Elís Gunnarsdóttir
Ljósahönnun
HildibergKristján Kristjánsson
Kjartan Óskarsson
Smíði/uppsetning
Verkstæðið ehf.
Pétur Örn Friðriksson
Tonie Zetterström
Bræðurnir Baldursson
Gunnar Örn Gunnarsson
Vilhjálmur H. Ólafsson
Þjóðminjasafniðþakkar ríkisstjórn Íslands veittan stuðning við gerð sýningarinnar.
Eftirtöldum er þakkað fyrir aðstoð og lán á munum til sýningarinnar:
Victoria & AlbertMuseum, London
Annríki – Þjóðbúningar og skart: Guðrún Hildur Rosenkjær og ÁsmundurKristjánsson
Ljósmyndir úr safneign og sérhannaðar fallegar vörur sem tengjast sýningarhaldi

















