17. júní - Aðgangur ókeypis, barnasmiðja og rjómapönnsur

Í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga þann 17. júní er aðgangur ókeypis á sýningar og í barnasmiðju Þjóðminjasafn Íslands. Kaffihúsið verður að venju opið og í tilefni dagsins verður slegið upp í pönnukökur og þær bornar fram með rabbabarasultu og rjóma.
Sýningar safnsins eru, auk grunnsýningarinnar Þjóð verður til, sérsýningarnar Samtal við Sigfús og Þjóð í mynd - myndefni frá stofnun lýðveldis 1944. Auk fyrrnefndra sýninga er boðið upp á barnasmiðju um Leyndardóma Valþjófsstaðahurðarinnar.
Barnasmiðja kl. 14-16: Barnasmiðjan, Leyndardómar Valþjófsstaðahurðarinnar er í höndum barnabókahöfundarins og teiknarans Blævar Guðmundsdóttur og fer hún fram í fjölskyldurými á 1. hæð safnsins. Blær er jafnframt höfundur og teiknari fjölskylduþrautabókarinnar, Leyndardómar Valþjófsstaðahurðarinnar, sem er ný fræðslu- og þrautabók fyrir börn með þjóðlegu ívafi. Í Barnasmiðjunni tekur Blær á móti börnum og kemur þeim af stað í uppgötvunarleiðangur um Leyndardóma Valþjófsstaðahurðarinnar. Í fjölskyldurýminu eru síðan skemmtilegar og skapandi vinnusmiðjur, þrautir og fróðleikur og auðvitað gefst færi á að berja hina einu sönnu Valþjófsstaðahurð augum á grunnsýningu safnsins, Þjóð verður til.
Leyndardómar Valþjófsstaðahurðarinnar eftir Blævi Guðmundsdóttur er skemmtilegt þrautahefti um Valþjófsstaðahurðina og leyndardómana sem fylgja sögu hennar og myndunum á hurðinni. Bókin er í takmörkuðu upplagi og er fáanleg í safnbúð Þjóðminjasafns Íslands.
Valþjófsstaðahurðin er einn af merkilegustu gripum okkar Íslendinga sem varðveitt er og er til sýnis í Þjóðminjasafni Íslands. Hurðin var í kirkjunni á Valþjófsstað í Fljótsdal í yfir 600 ár og hægt er að sjá eftirlíkingu af henni þar.
Þrautabókin inniheldur skemmtilegar þrautir, fjölmargar sögur, rannsóknir og vangaveltur sem tengjast hurðinni og myndasögunni um riddarann, drekann og ljónið í efri hring hurðarinnar. Hurðin er skoðuð með tilliti til safnastarfs og rannsókna og m.a. komist að ýmsu merkilegu eins og því hvernig hún var á litinn. Skemmtilegt þrautahefti sem inniheldur orðasúpu, þrautir, sögur, ráðgátur og rúnir.
Útgefendur eru Þjóðminjasafn Íslands og Minjasafn Austurlands.
Blær Guðmundsdóttir er teiknari, barnabókahöfundur og grafískur hönnuður. Hún hefur myndlýst fjölmargar barna- og skólabækur þ.á.m. bækurnar um Stúf, Holupotvoríur, Ég og sjálfsmyndin, Orð eru ævintýri og Kærókeppnina. Hennar fyrsta frumsamda bók, Sipp, Sippsippanipp og Sippsippanippsippsúrumsipp – systurnar sem ætluðu sko ekki að giftast prinsum kom út árið 2019 og vann Blær FÍT- verðlaunin fyrir þessa frumraun sína og hlaut einnig tilnefningu til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar í flokki myndlýstra bóka.
Gleðilega þjóðhátíð og velkomin á Þjóðminjasafnið
Aðgangur ókeypis
Nánar um opnunartíma sýninga, kaffihúss og safnbúðar:https://www.thjodminjasafn.is/