Viðburður vinafélags Þjóðminjasafnsins, Minjar og saga
Helförin í nýju ljósi - Bókaspjall með Laurence Rees
Hvenær
Laugardagur 13. desember 2025
Kl. 12
Hvar
Fyrirlestrarsalur, jarðhæð
Minjar og saga, vinafélag Þjóðminjasafns Íslands, stendur fyrir fundi ásamt breska fræðimanninum Laurence Rees, rithöfundi bókarinnar Helförin í nýju ljósi, í fyrirlestrarsal safnsins laugardaginn 13. desember kl. 12.
Laurence Rees mun ræða bókina, tilurð hennar og þann lærdóm sem hann hefur dregið af áratuga rannsóknum á helförinni og illvirkjum nasista. Bókin kom út á íslensku nú í haust í þýðingu Jóns Þ. Þór.
Að fundi loknum mun Laurence Rees árita bók sína, hafi fólk eintak sitt meðferðis eða kaupi hana á staðnum.
Enginn aðgangseyrir er á fundinn. Gert er ráð fyrir að honum ljúki um kl. 13 og geta þau sem það vilja tyllt sér niður að fundi loknum á kaffihúsinu, en þar eru í boði léttar veitingar gegn vægu gjaldi.











