Hvenær
May 31, 2025
Kl. 14
Hvar
Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Þjóðminjasafn Íslands í samstarfi við Þjóðgarðinn á Þingvöllum bjóða upp á sérfræðileiðsögn um sýninguna Lögréttutjöldin, laugardaginn 31. maí kl. 14. Þetta er jafnframt lokaleiðsögnin um sýninguna, en hún verður tekin niður í byrjun júní. Þá verða tjöldin flutt aftur til Skotlands, en þau eru í eigu Þjóðminjasafns Skotlands.

Leiðsögnin er í höndum Torfa Stefáns Jónssonar fræðslufulltrúa við Þjóðgarðinn á Þingvöllum.

Sýningin var sett upp á Þjóðminjasafninu sumarið 2024 í tilefni af 80 ára afmælishátíð lýðveldis á Íslandi. Tjöldin eru talin hafa hangið í Lögréttuhúsinu á Þingvöllum á síðari hluta 18. aldar.

Hin svokölluðu Lögréttutjöld voru seld skoskum ferðamanni að nafni Robert Mackay Smith árið 1858 en eru nú í eigu Þjóðminjasafns Skotlands, eins og fyrr sagði. Þegar þau voru seld úr landi höfðu þau verið á Bessastöðum í þó nokkurn tíma.

Lögréttutjöldin eru í raun tvö mislöng rúmtjöld úr ull og líni sem hafa verið saumuð saman eftir langhliðinni. Þau eru skreytt með útsaumi og áletrunum. Á öðru eru spakmæli en brot úr passíusálmi eftir Hallgrím Pétursson á hinu.

Sýningin, sem brátt verður tekin niður er samstarfsverkefni Þjóðminjasafns Íslands, Þjóðminjasafns Skotlands og Þjóðgarðsins á Þingvöllum.

Að lokinni leiðsögn er tilvalið að skoða aðrar sýningar safnsins og njóta þess síðan að setjast niður á kaffihúsinu með rjúkandi kaffi og með því.

Fullorðnir greiða 3.000 kr. aðgangseyri og fá þá árskort sem gildir á alla viðburði og sýningar safnsins í ár frá kaupum.
Ókeypis er á sýningar og í leiðsögn fyrir börn að 18 ára aldri.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.