Rómantík og draugar á Þjóðminjasafninu á Alþjóðlega safnadeginum
.jpg)
Sunnudaginn 18. maí er Alþjóðlegi safnadagurinn en hann er haldinn í 158 löndum og þátttakendur eru um 37.000 söfn.
Á Þjóðminjasafni Íslands verður boðið upp á tvær afar áhugaverðar örleiðsagnir í tilefni dagsins.
Kl. 13:00 Rómó á Þjómó (örleiðsögn)
Ástir og örlög! Hver elskar ekki að kynnast ástarlífi annarra? Í þessari leiðsögn verða skoðaðir gripir sem tengjast rómantík, ástum og hjónalífi og varðveittir eru í Þjóðminjasafni Íslands.
Kl. 14:00 Draugar og huldufólk, hjátrú og galdrar (örleiðsögn)
Álfa- og draugatrú hefur alla tíð verið sterk á Íslandi. Í þessari leiðsögn verða skoðaðir gripir sem tengjast hjátrú og göldrum og varðveittir eru í Þjóðminjasafni Íslands. Skoðaðir verða verndargripir frá landnámsöld, helgir dómar frá miðöldum og ýmsir gripir sem eiga sér sögu tengda álfum og öðru huldufólki.
Sérstaklega verður farið í brennuöld og galdrafár 17. aldar, en einnig fjallað um ýmsa hjátrú og þjóðsögur frá 18. og 19. öld sem lýsir samskiptum mennskra manna við hinar ýmsu óvættir og sögurnar settar í samhengi við lifnaðarhætti og daglegt líf manna fyrr á öldum.
Að lokinni leiðsögn er tilvalið að skoða aðrar sýningar safnsins, setjast niður á kaffihúsinu, fönda með börnunum í fjölskyldurýminu eða líta við í safnbúðinni.
Ókeypis er á sýningar og í leiðsögn fyrir börn að 18 ára aldri.
Fullorðnir greiða 3.000 kr. aðgangseyri og fá þá árskort sem gildir á alla viðburði og sýningar safnsins í ár frá kaupum.