Útsaumssamvera – Settu spor þín í blómagarð Guðrúnar

Þjóðminjasafn Íslands og Annríki bjóða til útsaumssamveru að hætti formæðra á fyrstu vetrarmánuðum. Gestum gefst tækifæri til að kynnast blómstursaumi og leggja sitt af mörkum til sameiginlegs handverks sem verður varðveitt á safninu.
Samverurnar hefjast að lokinni sunnudagsleiðsögn eða þriðjudagsfyrirlestri á eftirfarandi dögum:
Sunnudaginn 18. október kl. 15
Sunnudaginn 25. október kl. 15
Sunnudaginn 15. nóvember kl. 15
Þriðjudaginn 17. nóvember kl. 13
Sunnudaginn 22. nóvember kl. 15
Blómstranna móðir – Guðrún Skúladóttir (1740–1816)
Guðrún Skúladóttir var annáluð fyrir fagurt handverk. Á sýningunni má sjá þrjú pils eftir hana, öll prýdd litríkum blómum saumuðum með blómstursaumi. Guðrún hafði atvinnu af saumaskap og handverkskennslu í sínu Annríki í Viðeyjarstofu og hlaut að lífslokum heiðursnafnbótina „Blómstranna móðir“.
Í útsaumssamverunni fá þátttakendur innsýn í handverksheim formæðra sinna með því að sauma blóm í ullarklæði með litríku, jurtalituðu bandi. Við komum saman, lærum hvert af öðru og njótum þess að setja spor okkar í blómagarð Guðrúnar.
Sameiginlegt handverk
Boðið verður upp á kennslu í blómstursaumi og allt efni verður á staðnum; ullarklæði með áprentuðu mynstri, jurtalitað band og nálar. Reynslumikið handverksfólk frá Annríki – Þjóðbúningum og skarti leiðbeinir og aðstoðar þátttakendur. Útsaumurinn er unninn á staðnum og verður eftir á safninu. Að lokum verða útsaumstykkin sett saman í pils sem ber spor allra sem taka þátt.
Fyrir þau sem vilja halda áfram að sauma heima eru útsaumspakkningar með blómstursaumi til sölu í safnbúðinni.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.










