Hvenær
Þriðjudagur, 20. október 2026
Kl. 12
Hvar
Fyrirlestrarsalur, 1. hæð

Í hádeginu alla þriðjudaga yfir vetrar- og vormánuði býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.

Þriðjudaginn 20. oktober flytur Vilhelm Vilhelmsson sagnfræðingur fyrirlesturinn Heimur vistarbandsins á 18. og 19. öld.

Vistarbandið, skylda búlausra fullorðinna einstaklinga til að ráða sig í ársvist hjá búandi mönnum, er vel þekkt fyrirbæri í sögu Íslands. Flestir þekkja sögur af forfeðrum sem voru í vist um tíma og áttu misgóða reynslu af. Þó eru um vistarbandið margvíslegar ranghugmyndir á kreiki sem ekki standast nánari skoðun. Í þessum fyrirlestri verður fjallað um heimvistarbandsins á Íslandi á 18. og 19. öld, rýnt í löggjöf um vinnuhjú og skoðuð nokkur dæmi sem varpað geta ljósi á sambúð vinnuhjúa og húsbænda þeirra.

Vilhelm Vilhelmsson er með doktorspróf í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Hann starfar sem forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og hefur lengi fengist við rannsóknir á heimi vistarbandsins á Íslandi.

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.