Þriðjudagsfyrirlestur: Gersemar í heimanmundi - Fataskápur eða listaverk

Í hádeginu alla þriðjudaga yfir vetrar- og vormánuði býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.
Þriðjudaginn 17. nóvember kl. 12 mun Guðrún Hildur Rosenkjær sagnfræðingur og meistari í kjóla- og búningasaum mun halda fyrirlestur um einstakan heimanmund Þórunnar Ólafsdóttur frá árinu 1780, er hún giftist Hannesi Finnssyni biskupi. Saga Þórunnar er að mörgu leiti einstök og það er einnig sá fatnaður og skart sem lýst er í heimanmundi hennar. Hildur veltir upp spurningum um merkingu og mikilvægi búningaeignar Þórunnar sem hún byggir á rannsóknum á fatnaði og búningum frá 18. öld. Til að útskýra umfang og mikilfengleika búninganna mun Hildur sýna endurgerðir af slíkum fatnaði og fleira áhugavert.
Guðrún Hildur hefur um árabil helgað störf sín rannsóknum, endurgerð og miðlun íslenskra búninga. Í verkum sínum sameinar hún fræðilega heimildarýni og verklega rannsóknaraðferð þar sem hún endurgerir búninga, efni og vinnuaðferðir til að varpa nýju ljósi á þætti sem ritaðar heimildir einar ná ekki að skýra.
Að erindinu loknu mun Hildur leiða útsaumssamveru í barna- og fjölskyldurýminu á fyrstu hæð sem ber yfirskriftina Útsaumssamvera – Settu spor þín í blómagarð Guðrúnar en þar munu gestir kynnast blómstursaumi og leggja sitt af mörkum til sameiginlegs handverks sem verður varðveitt á safninu.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti og veitir aðgang á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.












