Sunnudagsleiðsögn: Feður í blíðu og stríðu

Þjóðminjasafn Íslands býður upp á spennandi uppákomur alla sunnudaga yfir vetrar- og vormánuði. Fyrsta sunnudag í mánuði er boðið upp á dagskrá fyrir börn og fjölskyldur, aðra sunnudaga leiðsögn sérfræðinga um sýningar safnsins en síðasta sunnudag í mánuði fer sérfræðileiðsögnin fram á erlendu tungumáli.
Á feðradaginn, sunnudaginn 8. nóvember kl. 14 mun Kristján Hannesson beina sjónum að feðrum á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins, en á þessum unga hátíðsdegi ætlum við að skoða hvað það hefur þýtt að vera faðir á Íslandi í gegnum aldirnar. Í leiðsögninni skoðum við hvernig föðurhlutverkið hefur mótast af samfélagi, trú, vinnu og fjölskyldulífi. Við veltum fyrir okkur hugmyndum um föðurvald, ábyrgð og uppeldi, og hvernig hlutverk feðra og mæðra, karla og kvenna, hafa tekið breytingum í tímans rás. Með hjálp safngripa og sögulegra heimilda leitumst við við að varpa ljósi á ólíkar hugmyndir um fjölskylduna og stöðu feðra í íslensku samfélagi fyrr og nú.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og aðgangi á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins gegn framvísun kortsins. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.












