Hvenær
Sunnudagur, 1. nóvember 2026
Kl. 14-15:30
Hvar
Grunnsýning, 2. hæð

Þjóðminjasafn Íslands býður upp á spennandi uppákomur alla sunnudaga yfir vetrar- og vormánuði. Fyrsta sunnudag í mánuði er boðið upp á dagskrá fyrir börn og fjölskyldur, aðra sunnudaga leiðsögn sérfræðinga um sýningar safnsins en síðasta sunnudag í mánuði fer sérfræðileiðsögnin fram á erlendu tungumáli.

Félagar í Rimmugýgi gera vinsamlega "innrás" á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins og bjóða barnafjölskyldum að koma og tala við sig og læra um lífið á víkingaöld. Þau mæta í fullum skrúða og koma sér fyrir með margvíslegt handverk eða leiki, svo sem hnefatafl og hnykla, og bjóða gestum að prófa handtökin og fræðast. Verkfærin og munirnir sem þau nota eiga sér fyrirmyndir í fornmununum í sýningarskápunum. Til dæmis eru þau með hluti eins og hnefatafl, kamba, snældur, skartgripi og fleira. Þá er eins og sýningargripirnir lifni við í höndum fólks sem kann að nota þá.

Á leiksvæði á jarðhæð mega krakkar púsla kumlpúsl, leika með gamaldags leikföng, lita myndir og máta búninga og leika með víkingadót.

Komið og sjáðu grunnsýningu Þjóðminjasafnsins lifna við með Rimmugýgi!

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti og veitir aðgang á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.