Hvenær
Þriðjudagur, 27. október 2026
Kl. 12
Hvar
Fyrirlestrarsalur, 1. hæð

Í hádeginu alla þriðjudaga yfir vetrar- og vormánuði býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.  

Þriðjudaginn 27. október, kl. 12-12:45 mun dr. Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur fjalla um merkilega húfu sem fannst við uppgröft á Þingeyrum í Húnaþingi sumarið 2021. Húfan fannst í gröf Jóns Þorleifssonar sem var klausturhaldari á staðnum um nokkurra ára skeið en hann lést í embætti árið 1683, aðeins 27 ára gamall. Í gröfinni fannst einnig signethringur með skjaldarmerki fjölskyldu Jóns og fangamark hans (J Þ). Með hringnum var því hægt að bera kennsl manninn í gröfinni.

Húfan er úr silki (flaueli) með silfurkniplingum. Húfur af þessari gerð voru í tísku meðal evrópsks aðals á tímum Jóns og sambærilegar húfur hafa fundist hér á landi og í nágrannalöndunum. Fundur hennar bendir því til þess að Íslendingar hafi fylgst vel með nýjustu tísku, rétt eins og aðrir Evrópubúar. En húfan er ekki aðeins merkileg ein og sér. Hún leiddi til óvæntra uppgötvana sem Steinunn segir frá í fyrirlestrinum.

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.