Þriðjudagsbíó: Íslendingar í Vesturheimi

Í hádeginu á þriðjudögum býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.
Þriðjudagsbíó á Þjóðminjasafninu er fastur liður í viðburðaröðinni og er unninn í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands. Reglulega í hádeginu á þriðjudögum bjóða söfnin upp á spennandi dagskrá íslenskra kvikmynda í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins. Í vetur verða m.a. sýndar áhugaverðar myndir eftir Vigfús Sigurgeirsson og Ósvald Knudsen sem og áður lítt þekkt mynd um Íslendinga í Vesturheimi, Iceland on the Prairies.
Þriðjudaginn 3. mars verður boðið upp á sýningu á myndinni Iceland on the Prairies frá 1940. Kvikmyndin er einstök heimild um líf Íslendinga í Vesturheimi um miðja síðustu öld. Sjá má hvernig íslenskar hefðir lifðu með fólkinu og hvaða hefðir fólkið ræktaði frá gamla landinu. Gunnar Tómas Kristófersson sérfræðingur rannsókna á Kvikmyndasafni Íslands mun fræða fólk meðan á myndinni stendur og svara spurningum í lokin. Sýningin tekur 45 mínútur.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið.

Meginhlutverk Kvikmyndasafns Íslands er að safna, skrásetja og varðveita íslenskar kvikmyndir; hafa eftirlit með skilum kvikmyndaefnis samkvæmt lögum um skylduskil til safna og standa fyrir sýningum á innlendri og erlendri kvikmyndalist. Jafnframt gegnir safnið því hlutverki að sjá um viðhald og endurgerðir á kvikmyndum safnsins og skapa fræðimönnum og fagmönnum aðstöðu til að stunda kvikmyndafræðilegar rannsóknir.











