Jólasveinarnir heimsækja safnið 12.-24. desember

Jólasveinarnirkoma hver á fætur öðrum til byggða frá og með 12. desember og heilsa upp ágesti Þjóðminjasafnsins kl. 11 daglega til og með 24. desember. Þeir mæta einn í einu á þeim degi sem þeir gefa í skóinn, hitta börnin og fræða þau um kæki sína og kenjar úr gamla bændasamfélaginu og sprella. Um helgar mæta jólaskellur, systur jólasveinanna, ein hverju sinni, þær Flotsokka, Taska og Leppatuska, og kankast á við bróður sinn og krakkana í sal.
Umsjón: Pétur Eggerz hjá Möguleikhúsinu
Undirleikari og stjórnandi fjöldasöngs í anda jólaballa: Guðni Franzson.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og aðgangi á alla viðburði og sýningar safnsins gegn framvísun kortsins. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.








