Opnunarhátíð jóladagskrár

Sunnudaginn 29. nóvember kl. 14 er opnunarhátíð jóladagskrár Þjóðminjasafnsins í fjölskyldurými safnsins á 1. hæð. Jóladagskráin hefst á jólatónleikum nemenda úr Allegro Suzuki-tónlistarskólanum og í framhaldinu les Björg Jóna Birgisdóttir upp úr bók sinni Jólahúsið hennar Sonju.
Jóladagskrá Þjóðminjasafnsins í heild sinni má finna HÉR.
Þjóðminjavörður býður gesti velkomna.
14:00 – Jólatónleikar Allegro Suzuki-tónlistarskólans: Nemendur skólans leika jólalög í bland við aðra tónlist í einleiks- og samleiksatriðum.
14:30 – Björg Jóna og Jólahúsið hennar Sonju. Jólasagan byggir á æskuminningu móður höfundar, Sonju Backman. Sagan gerist á sveitabæ við Háaleitisveg í Reykjavík um miðja síðustu öld og lýsir jólaundirbúningi, eftirvæntingu og lífi barna á tímum sem nú eru að mestu horfnir.
Öll velkomin. Enginn aðgangseyrir er á viðburðinn.










