Hvenær
Föstudagur, 4. desember 2026
Kl. 13-15
Hvar
Fyrirlestrarsalur

Þjóðminjasafn Íslands og Félag fornleifafræðinga standa árlega fyrir dagskrá í tilefni afmælisdags dr. Kristjáns Eldjárn (1916-1982). Nú eru 110 ár liðin frá fæðingu hans.

Kristján var þriðji forseti Íslands og gegndi embættinu á árunum 1968–1980. Hann var fornleifafræðingur og starfaði sem þjóðminjavörður áður en hann varð forseti og helgaði stóran hluta ævinnar rannsóknum og miðlun íslensks menningararfs.

Arthur Knut Farestveit, ritari Félags fornleifafræðinga stýrir dagskránni

Dagskrá

Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður setur viðburðinn.

Kristján Eldjárn og myndin af fornþjóðinni
Adolf Friðriksson, fornleifafræðingur og formaður Fornleifastofnunar Íslands

Horfinn heimur? Hugmyndir Kristjáns Eldjárns um embætti forseta Íslands
Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og sagnfræðiprófessor

Kristján Eldjárn í lifandi myndum
Gunnar Tómas Kristófersson, sérfræðingur í rannsóknum við Kvikmyndasafn Íslands

Þjóðminjasafnið býður upp á léttar kaffiveitingar að dagskrá lokinni

Öll velkomin, enginn aðgangseyrir!

‍

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.