Þriðjudagsbíó: Fyrstu ár fullveldisins á kvikmynd

Í hádeginu alla þriðjudaga yfir vetrar- og vormánuði býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.
Þriðjudagsbíó á Þjóðminjasafninu er fastur liður í viðburðaröðinni og er unnið í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands. Fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði bjóða söfnin upp á spennandi dagskrá íslenskra kvikmynda í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins.
Á fyrstu árum fullveldisins beindu fyrstu íslensku kvikmyndagerðarmennirnir vélum sínum að umhverfinu og mannlífinu í kringum sig. Á sérstakri fullveldissýningu Kvikmyndasafns Íslands og Þjóðminjasafns Íslands verða sýndar nokkrar af elstu kvikmyndum safnsins. Þær varðveita svipmyndir af daglegu lífi á Íslandi á fyrstu árum fullveldisins. Meðal myndanna eru verk eftir Bíópetersen, Loft Guðmundsson, Martinus Simson og Magnús Ólafsson.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti og veitir aðgang á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.










