Grýluskemmtun með Leppalúða og jólaskellunum

Grýluskemmtunin er orðin fastur liður í jólaundirbúningi fjölmargra fjölskyldna á höfuðborgarsvæðinu. Með Grýlu verður Leppalúði með í för og hinar kátu og uppátækjasömu jólaskellur; Flotsokka, Taska og Leppatuska. Þær hafa sínar kenjar og sérkenni eins og bræður þeirra þrettán, jólasveinarnir.
Flotsokka er sólgin í flot og safnar því í sokkana sína, Leppatuska er nefnd eftir Leppalúða föður sínum og æðir á eftir honum með tuskurnar á lofti í Grýluhelli (þau sem ekki vilja fá skammir ættu að ganga snyrtilega um í desember). Taska stenst ekkert fallegt og laumar í tösku sína því sem glitrar og skín (passið vel upp á jólaskrautið).
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.










