Þorlákstíðir í Þjóðminjasafninu með Voces Thule

Miðaldasönghópurinn Voces Thules mun halda Þorláksmessu hátíðlega á Þjóðminjasafninu kl. 15 miðvikudaginn 23. desember. Kjarni efnisskrárinnar eru söngvar úr Þorlákstíðahandritinu frá 14. öld, en einnig verða fluttir söngvar fleiri dýrlinga úr íslenskum handritum, svo sem heilags Nikulásar, heilags Magnúsar Orkneyjajarls og heilagrar Barböru auk fornra jólasálma, m.a. eftir sr. Ólaf Jónson á Söndum við Dýrafjörð. Í upphafi tónleikanna mun Helga Vollertsen, viðburða- og fræðslusérfræðingur Þjóðminjasafnsins, standa fyrir stuttri leiðsögn um sýninguna með áherslu á muni sem tengjast efni tónleikanna. Lengd viðburðarins er um 1 klukkustund.
Sönghópurinn Voces Thules var stofnaður 1991. Hópurinn hefur skapað sé nafn sem leiðandi afl í rannsóknum og flutningi á íslenskri tónlist miðalda. Viðamesta verkefni hópsins er heildarflutningur, hljóðritun og útgáfa á Þorlákstíðum, einu merkasta af íslenskum tónlistarhandritum. Hópurinn flutti allt verkið á Listahátíð í Reykjavík 1998. Hljóðritanir hópsins af Þorlákstíðum voru gefnar út í apríl 2006 og hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin sem plata ársins í sígildri og samtímatónlist. Hópurinn hefur komið fram á ótal þingum og ráðstefnum tileinkuðum fornum tónlistarhandritum. Hópurinn var tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs sem flytjendur ársins 2008. Um þessar mundir stendur fyrir dyrum útgáfa á Þorlákstíðum á nótum í umskrift Eggerts Pálssonar byggðri á rannsóknum og reynslu Voces Thules. Hið íslenska bókmenntafélag gefur út með stuðningi Hagþenkis og Menningarsjóðs Seðlabanka Íslands sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordal.
Hópurinn hefur mótað sér skýra aðferðafræði í nálgun á margvíslegum heimildum frá fyrri öldum sem byggja m.a. á miðalda-aðferðum í tónsmíðum og spuna. Til að fanga hinn forna hljóðheim notar hópurinn aðferðir sem hann hefur þróað í yfir þrjá áratugi, og felst í að velja heimildir sem geta verið nótnahandrit, handrit með vísum, prentaðar nótur eða textar eða lög eða textar úr munlegri geymd, þekking á forsendum út frá ákveðnu sögusviði eða efnisleg hegðun eða virkni hljóðfæra á vissum tímabilum eða stöðum. Þetta efni er prófað gegnum spuna þar sem raddirnar og hljóðfærin sem hópurinn býr yfir eru þanin með fjölmörgum möguleikum á samsetningum og samhljómi, en einnig eru stundum tillögur að útleggingum, útsetningum eða útfærslum settar niður á blað og hópurinn þróar þær áfram. Stundum verða til nýjar laglínur eða ný mótív sem falla að hinu forna efni, og er svo tvinnað saman við hinar fundnu heimildir.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.










