Hvenær
June 14, 2026
Kl. 14
Hvar
Bogasalur, 2. hæð

Ágústa Kristófersdóttir fræmkvæmdastjóri munasafns Þjóðminjasafns Íslands leiðir gesti um sýninguna Brúðarbúningurinn – með sögu í farangrinum. Hún segir sögur af fólkinu sem átti búninginn, klæddist honum og afhenti hann síðan úr landi. Hvernig var líf íslenskra auðmanna á 18. öld?

Brúðarbúningurinn er úr eigu kvenna í Stephensen-fjölskyldunni, sem á þessum tíma varð ein valdamesta og efnaðasta fjölskylda landsins. Ættmóðirin, Sigríður Magnúsdóttir, bar hluta hans við brúðkaup þeirra Ólafs Stefánssonar, síðar stiftamtmanns, árið 1761. Eldri dóttir þeirra, Þórunn, fékk hluta búningsins í heimanmund árið 1780 er hún gekk að eiga Hannes Finnsson biskup. Búningurinn færðist svo í eigu Ragnheiðar, yngri systur Þórunnar. Búningurinn þótti svo vandaður að þegar erlenda gesti bar að garði var hann dreginn fram og sýndur aðkomumönnum, sem sumum þótti klæðnaðurinn sérkennilegur.

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og aðgangi á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins gegn framvísun kortsins. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.