Leiðsögn og klippimyndasmiðja fyrir börn í vetrarfríi: Sögur af beinagrindum, brúðarbúningi og baðstofum

Í tilefni af vetrarfríi í grunnskólum býður Þjóðminjasafn Íslands börnum á yngsta- og miðstigi í heimsókn í safnið að skoða sýningar safnsins með safnkennara föstudaginn 23. október kl. 14.
Gripir safnsins geyma margar sögur. Beinagrindurnar á sýningunni gefa t.d. einstakar upplýsingar um líf og dauða manneskjanna sem þær tilheyrðu og auka við skilning okkar á lífinu á víkingaöld hér á landi. Ríkulegur brúðarbúningur frá 18. öld dregur fram ævintýraleg örlög kvennanna í einni efnuðustu valdaætt landsins. Og ferðalag sjálfs búningsins í gegnum aldirnar og á sýningu í safninu dag er hreint ótrúlegt. En baðstofan? Hvað erum við að tala um þegar við tölum um baðstofu?
Að skoðun lokinni er boðið upp á klippimyndasmiðju í anda vegglistaverks Kristjana Williams Studio á sýningunni Með sögu í farangrinum - Brúðarbúningurinn í fjölskyldu- og barnarýminu á 1. hæð, þar sem einnig má gleyma sér í frjálsum leik.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.











