Barnaviðburður
Barnadagskrá: Útgáfuleikar, smiðjur, þrautir og leyndardómar!

Hvenær
April 6, 2025
kl. 14 - 16
Hvar
Þjóðminjasafnið
Útgáfuleikar: Leyndardómar Valþjófsstaðahurðarinnar - þrautahefti.
Þjóðminjasafnið og Minjasafn Austurlands standa fyrir útgáfu á skapandi vinnuhefti fyrir börn Leyndardómar Valþjófsstaðahurðarinnar. Höfundur þess er Blær Guðmundsdóttir, barnabókahöfundur og teiknari.

Í tilefni útgáfunnar stendur Þjóðminjasafnið fyrir fjölbreyttri barna- og fjölskyldudagskrá sunnudaginn 6. apríl, kl. 14-16.
Skemmtilegir útgáfuleikar með vinnusmiðjum, margvíslegri skemmtun og gestum gefst færi á að berja hina einu sönnu Valþjófsstaðahurð augum.
Krakkatilboð á kaffihúsinu.
Aðgangur ókeypis.
Við hlökkum til að sjá ykkur!