Hvenær
September 14, 2025
Kl. 14
Hvar
Þjóðminjasafnið suðurgötu

Víkingar, álfar, riddarar og spávölur

Leiðsögn fyrir börn

Sunnudaginn 14. september kl. 14 er fyrsta barnaleiðsögn haustsins í Þjóðminjasafni Íslands. Safnkennari gengur með börnunum gegnum grunnsýningu safnsins, Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár, en sýninguna má heimsækja aftur og aftur enda er hún full af spennandi gripum sem segja merkilega sögu.

Ferðalagið hefst á slóðum landnámsfólksins á 9. öld. Þaðan liggur leiðin gegnum sýninguna og 1200 ára sögu þjóðarinnar fram til nútímans. Staldrað er við ýmsa spennandi muni, meðal annars beinagrindur, 1.000 ára gömul sverð og enn eldra skyr! Dularfullur álfapottur verður á vegi okkar, hurð sem segir sögu og skringileg gríma. Árabáturinn er alltaf vinsæll og hjá gamaldags leikföngum gefst tækifæri til að spreyta sig á að kasta spávölu eða snúa skopparakringlu.

Aðgangur aðfjölskyldurýminu á fyrstu hæð safnsins er ókeypis fyrir alla.
Aðgangur ásýningar safnsins eru einnig ókeypis fyrir börn en 3.000 krónur fyrir fullorðna. Miðinn gildir í ár frá kaupum.

Krakkatilboð á kaffihúsi: Kakó og kleina

Safnbúðin verður með sérstakt tilboð á Púslinu – Kumlið frá Hafurbjarnarstöðum - https://netverslun.thjodminjasafn.is/.../pusl-kumlid-fra.../

Verið öll velkomin!

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.