Barnaviðburður: Beinagrindur, bátar og baðstofa
.webp)
Þjóðminjasafn Íslands býður upp á spennandi uppákomur alla sunnudaga yfir vetrar- og vormánuði. Fyrsta sunnudag í mánuði er boðið upp á dagskrá fyrir börn og fjölskyldur, aðra sunnudaga leiðsögn sérfræðinga um sýningar safnsins en síðasta sunnudag í mánuði fer sérfræðileiðsögnin fram á erlendu tungumáli.
Hvað er kuml? Eða knörr? Til hvers var dularfulla trégríman og hvernig léku börn sér að völum í gamla daga? Leiðbeinandi frá safninu tekur vel á móti börnum og fjölskyldum og veltir upp þessum spurningum og mörgum fleiri sem gaman er að rannsaka.
Gripir safnsins geyma margar sögur. Álfar, riddarar og drekar koma fyrir í sögunum, en svo er líka spennandi að setja sig í spor fólksins sem notaði hlutina löngu áður en þeir komu á safnið.
Beinagrindurnar á sýningunni geyma einstakar upplýsingar um líf og dauða á víkingaöld hér á landi.
Árabáturinn og baðstofan eru alltaf vinsæl og þar hjá má sjá leikföng sem krakkar léku sér með í gamla daga.
Í lokin er upplagt að spreyta sig á að kasta spávölu, snúa skopparakringlu eða leika með legg og kjálka í fjölskyldu- og barnarýminu á 1. hæð. Nú eða lita hunda- og kattamyndir eða gleyma sér í frjálsum leik.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og aðgangi á alla viðburði og sýningar safnsins gegn framvísun kortsins. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.











