Barnaviðburður: Fræðslustund um sólmyrkva með Stjörnu Sævari
.jpg)
Hungraðir drekar eða glorsoltnir úlfar – Af hverju óttaðist fólk sólmyrkva í fortíðinni?
Stjörnu Sævar tekur vel á móti krökkum á öllum aldri og fjölskyldum þeirra og fræðir um sólmyrkva, en almyrkvi mun leggjast yfir vesturhluta landsins á komandi sumri. Á eftir fræðslustundinni býður safnkennari gestum að fylgja sér inn á grunnsýningu safnsins að leita uppi stjörnur, sólir og mána.
Þann 12. ágúst 2026 upplifa Íslendingar almyrkva á sólu í fyrsta sinn síðan 1954. Frá landnámi hefur alskuggi tunglsins tólf sinnum snert landið og stundum skotið fólki skelk í bringu. Af hverju óttaðist fólk sólmyrkva? Hvenær lærðum við að ekkert var að óttast, heldur að þeir væru aðeins fallegri og stórmerkilegir. Í fræðslustundinni verður fjallað á hressandi hátt um sólmyrkva í fortíð og framtíð. Þátttakendur fá að skoða sólina með sólarsjónaukum ef vel viðrar.
Sævar Helgi Bragason er dagskrárgerðarmaður í sjónvarpi og útvarpi, rithöfundur og vísindamiðlari. Hann hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir framúrskarandi vísindamiðlun og líka íslenskuviðurkenningu frá Íslenskri málnefnd.
Öskudagsskemmtunin er gjaldfrjáls fyrir börn að 18 ára aldri í báðum húsum. Í Eddu er enginn aðgangseyrir fyrir fullorðna, en í Þjóðminjasafninu er hann 3.300 kr., en gildir jafnframt sem árskort á allar sýningar og viðburði safnsins.











