Hvenær
Þriðjudagur, 13. október 2026
Kl. 12-12:50
Hvar
Fyrirlestrarsalur

Í hádeginu alla þriðjudaga yfir vetrar- og vormánuði býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.

Þriðjudaginn 13. október kl. 12:00-12:50 standa Kvikmyndasafn Íslands og Þjóðminjasafn Íslands sameiginlega fyrir hádegismálþingi um Loft Guðmundsson ljósmyndara, kvikmyndagerðarmann og einn helsta frumkvöðul íslenskrar ljósmynda- og kvikmyndasögu. Á málþinginu verður varpað ljósi á fjölbreytt framlag Lofts til íslenskrar menningarsögu sem og nýjustu rannsóknir á verkum hans.

Dagskrá

Hvernig myndast jeg best? Myndasafn Lofts Guðmundssonar í Þjóðminjasafni Íslands.
Ágústa Kristófersdóttir, sagn- og safnafræðingur, framkvæmdastjóri munasafns í Þjóðminjasafni

Hvað eiga Loftur Guðmundsson og Christopher Nolan sameiginlegt?
Erlendur Sveinsson, fyrrverandi forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands

Í hljóði og mynd - hljóðmyndaþríleikur Lofts Guðmundssonar
Gunnar Tómas Kristófersson, sérfræðingur rannsókna við Kvikmyndasafn Íslands

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.