Hvenær
February 26, 2026
Kl. 12-13
Hvar
Fyrirlestrarsalur, jarðhæð

Leifar fortíðar plantna, dýra og manna, virðast oft óþekkjanlegar, brúnar og sundurlausar. Stundum skilja þær eftir sig aðeins blett eða smásjárlegt ummerki í jarðveginum. Hvers vegna og hvernig ættum við að meðhöndla þessa tegund efnis í framtíðarrannsóknum?

Þegar kemur að rannsóknum á manneskjum fortíðar, veitir fátt okkur meiri upplýsingar en jarðneskar leifar þeirra. Bein og tennur hafa ætíð veitt mikilvægar vísbendingar og hefur mikilvægi þeirra aukist með tilkomu nýrra rannsóknaraðferða svo sem með DNA- og próteingreiningu. Því miður eru lífræðileg sýni viðkvæm fyrir rotnun og smiti. Hvaða þættir ráða varðveislu fornleifa á hinum ýmsum stigum, makróskópískt, smásjárlegt og sameindafræðilegt, bæði á fundarstað og utan hans?

Rannsóknin Future Past project (2021-2026) hefur þessa spurningu að leiðarljósi. Rannsóknin felst í uppgreftri og umhverfisvöktun í miðaldakirkjugarði í þéttbýli í Stavanger í Noregi. Ástand nýuppgrafinna leifa er borið saman við leifar beinagrinda sem þegar eru í safneignum. Verkefnið sameinar hefðbundna fornleifafræði, umhverfisvísindi og sameindalíffræði, og notar nýjustu aðferðir til að greina bæði efnislegar og umhverfisaðstæður, auk þess að veita innsýn í fyrri lífssögu og íbúafjölbreytni svæðisins frá miðöldum til nýaldar.

Athugið að fyrirlesturinn og umræður verða haldnar á ensku.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið.

Hege Ingjerd Hollund er yfirrannsakandi í forvörslu og varðveislufræðum við Fornleifasafnið við Háskólann í Stavanger. Í rannsóknum hennar mætast fornleifafræði, forvarsla og líffornleifafræði, með sérstakri áherslu á varðveislumál sem tengjast fornleifafræðilegum beinastofni. Sem stendur leiðir hún rannsóknarverkefnið „Future Past: Future Preservation of Past Life (2021-2026)“, fjölgreina rannsókn á varðveislu fornra líffræðilegra minja frá miðaldakirkjugörðum. Þetta verkefni beinist að umhverfisþáttum sem hafa áhrif á varðveislu líffornleifa og þeim líffornleifafræðilegu upplýsingum sem þær geyma. Rannsóknin hefur falið í sér uppgröft og umhverfisvöktun miðaldakirkjugarða, sem og greiningu á beinagrindum og öðrum grafarleifum, bæði til að skilja varðveisluskilyrði og líf í fortíðinni. Þetta felur í sér greiningar á beinagrindum manna, sem eru gerðar í samstarfi við teymi hjá DeCode á Íslandi.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.