Stofa - Kistlar / Woodcarving
2008-5-572 Kistill / Coffer (1820-1840)
Kistill úr furu eftir Hjálmar Jónsson frá Bólu, Bólu-Hjálmar. Grunnt skornir blaðabekkir eru á miðjum hliðum og göflum og stafirnir KMD á miðju loki. Það eru upphafsstafir konunnar sem fyrst hefur átt kistilinn, þ.e. K… M…dóttir. Á kistlinum eru höfðaleturslínur en úr þeim má lesa: „KISTANLÆS - TAFGULLIGL - ÆSTGEIME - RSTEINAKI - ÆRAECK - INÆSTN - IEURHENE - FÆSTORM -
ABOLID – SKIÆRA“
Þ.e.:
Kistan læst af gulli glæst,
geymir steina kæra.
Ekki næst né úr henni fæst
ormabólið skæra.
Ormaból merkir gull. Þetta er algeng vísa á útskornum kistlum eftir Bólu-Hjálmar. Vísan er annars eftir Arngrím Jónsson lærða og er rétt á þessa leið:
Kistan læst ef gullið glæst
geymir og steina skæra,
ekki næst né úr henni fæst
orma bólið kæra.
Mynd 12 af 41